Æðislegt námskeið

Bahar Mirza býr í Essyan flóttamannabúðunum í Kúrdistan. Hún er 47 ára gömul og er frá Sinjar héraðinu í Írak en þurfti að flýja með fjölskyldu sína þegar ISIS gerðu innrás 2014. Hún eyðir dögunum í heimilisverk og hugsar um nokkrar kindur sem hún á. Bahar hafði þetta um smyrslanámskeiðið hjá Önnu Rósu að segja: “Mér fannst það algjörlega frábært, þetta var alveg ný upplifun fyrir mig, mér fannst allt námskeiðið æðislegt. Svo fannst mér líka dásamlegt að fá að eiga smyrslið sem við bjuggum til en ég elska þetta smyrsl.”

Konurnar á námskeiðunum

Hjörtum manna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu, orti Tómas Guðmundsson. Önnu Rósu finnst ekki mikill munur að kenna konum að búa til smyrsl á Íslandi eða í flóttamannabúðum í Kúrdistan. Sami áhuginn og sama gleðin.

The Lotus Flower

Við hefðum engin áhrif ef við værum ekki í samstarfi við The Lotus Flower samtökin. Starfsfólk þeirra gerir þetta verkefni að veruleika með einstakri hjálpsemi. Fjöldi manna hefur lagt hönd á plóg. Hér sjáið þið nokkrar hjálpahellur.

Konurnar á markaðnum

Þessar konur selja okkur jurtir fyrir námskeiðin. Þetta verkefni eflir því ekki aðeins konur í flóttamannabúðum heldur líka þessar konur.

0
Mánuðir
0+
Bakhjarlar
0
Konur á námskeiðum

Við eflum konur í flóttamannabúðum

Anna Rósa grasalæknir kennir konum í flóttamannabúðum í Kúrdistan Írak að búa til vörur úr lækningajurtum. Þær þurfa þína aðstoð!