Stjórn Lífgrasa

Góðgerðarsamtökin Lífgrös voru stofnuð 11. júní 2023 og starfa samkvæmt lögum nr. 119/2019. Öll vinna stjórnar er í sjálfboðavinnu og Anna Rósa þiggur engin laun frá samtökunum þegar hún vinnur í Úganda.

Anna Rósa Róbertsdóttir
Anna Rósa RóbertsdóttirFormaður stjórnar
Anna Rósa er grasalæknir, framkvæmdastjóri, rithöfundur og alþjóðlegur fyrirlesari. Hún framleiðir yfir 100 vörur í höndunum og tínir allar jurtirnar sjálf. Hún lætur hluta af hagnaði allrar framleiðslu renna til Lífgrasa.
Hjörleifur Sveinbjörnsson
Hjörleifur SveinbjörnssonMeðstjórnandi
Hjörleifur hefur stundað ýmis störf til sjós og lands. Hann stundaði nám í kínversku og kínverskum bókmenntum við Peking háskóla og hefur gefið út nokkrar bækur úr þeirri átt. Hann hefur meiri ánægju af því að vera úti en inni og njóta náttúrunnar.
Ingibjörg Birna Ólafsdóttir
Ingibjörg Birna ÓlafsdóttirGjaldkeri
Ingibjörg Birna brennur fyrir vellíðan fólks og jákvæðri sálfræði. Hún er með meistaragráður í viðskiptafræði og mannauðsstjórnun sem báðar snúa að rannsóknum á vellíðan. Ingibjörg Birna hefur látið sig góðgerðarmál varða, bæði á Íslandi og í Afríku.
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Kristrún Tinna GunnarsdóttirMeðstjórnandi
Kristrún er hagfræðingur að mennt en hefur starfað við fjölbreytt störf í fjármálageiranum víða um heim og einnig komið að þróunarverkefnum t.d. í Kenía, Indlandi og Malaví. Hún hefur mikla trú á valdeflandi hjálparstarfi sem leggur áherslu á að skapa sjálfbæra tekjustrauma frekar en að viðhalda þörf á frekari peningagjöfum.
Hrönn Greipsdóttir
Hrönn GreipsdóttirMeðstjórnandi
Hrönn er forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu en hlutverk sjóðsins er að fjárfesta í efnilegum sprotafyrirtækjum og vísisjóðum. Í gegnum starf sitt hittir hún mikið af fjárfestum, frumkvöðlum og hugmyndaríku fólki sem vill láta gott af sér leiða. Hrönn telur mikilvægt að skilgreina arðsemi fjárfestinga út frá fleiri þáttum en peningum og vill bæta í jöfnuna áhrifum á samfélagið og umhverfið.

Viltu skattaafslátt?

Ef þú styrkir okkur um 3.500 kr á mánuði áttu von á um 16.000 kr* í afslátt frá Skattinum.

*Útreikningar miðast við skattahlutfall í skattþrepi tvö, eða 37,95%.