Hvernig byrjaði þetta?
Þegar Anna Rósa fékk þá hugmynd að fara að kenna konum í flóttamannbúðum um grasalækningar þorði hún ekki að segja nokkrum manni frá því. Það væri alveg galið að ætla sér að fara til ókunnugs lands að gera þetta með ekki nokkur einustu tengsl. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Um Önnu Rósu
Anna Rósa stundaði nám í grasalækninum í 4 ár í Bretlandi. Hún hefur rekið eigin ráðgjöf og kennt um lækningamátt íslenskra jurta í yfir 30 ár ásamt því að gefa út vinsæla bók og vefnámskeið um íslenskar lækningajurtir. Hún framleiðir yfir 100 vörur í höndunum og tínir allar jurtirnar sjálf í íslenskri náttúru. Hún lætur hluta af hagnaði allra vara renna til Lífgrasa.
Hér getur þú kíkt á örstutta heimildarmynd um Önnu Rósu og hennar vinnu sem grasalæknir.