Gefðu grasasmyrsl! Þessi gjöf gefur fjórum konum í flóttamannabúðum krukkur af grasasmyrsli og námskeið til að læra að búa það til.

Konurnar hafa litla sem enga möguleika á að skapa sér tekjur en eftir námskeiðið geta þær selt vörur úr lækningajurtum.

Andvirði gjafarinnar rennur óskipt til verkefnis Lífgrasa í Kúrdistan Írak.

Hjartans þakkir fyrir að efla konur í flóttamannabúðum!

Við kaup á gjafabréfi færðu sendan tölvupóst með slóð til að hlaða það niður og prenta út. Þú getur líka komið í verslun Önnu Rósu grasalæknis á Langholtsvegi 109 og fengið útprentað gjafabréf í lit gegn framvísun greiðslukvittunar. Opnunartími verslunar er á fimmtudögum og föstudögum frá 12-16. Það er eingöngu hægt að greiða fyrir gjafabréf í þessari vefverslun, ekki í verslun Önnu Rósu.